Um verkefnið

Markmið verkefnisins ,,Aukin samkeppnishæfni bleikjueldis í landeldisstöðvum" er að:

Verkefnisstjóri

Verkefnisstjórn

Lýsing á verkefni

Markmiðið með þessu verkefni er að lækka stofnkostnað bleikjueldisstöðva með landeldi, lækka rekstrarkostnað og draga úr umhverfisáhrifum eldisins. Stefnt er að hanna og skipuleggja landeldisstöð þar sem hægt verður að framleiða bleikju á samkeppnishæfu verði í framtíðinni. Byggt verður á niðurstöðum rannsókna og hagnýtrar þekkingar eldismanna bæði hér á landi og í erlendis.  Lagt verður mat á kosti og ókosti við notkun lengdarstraumskara og hringlaga kara. Skoðaðir verða möguleikar við flutning og  stærðarflokkun á fiski, slátrun og losun á dauðum fiski til að auka afköst og bæta vinnuaðstöðu.  Einnig verði skoðaðar útfærslur á endurnotkun á vatni með það að markmiði að auka framleiðslugetu landeldisstöðva. Hér er um að ræða samstarfsverkefni flestra bleikjuframleiðenda á Íslandi sem munu nýta sér afrakstur verkefnisins ásamt nokkrum sérfræðingum frá stofnunum, háskólum og fyrirtækjum.

 

 

Titilsíða