|
|
|
|
Sjávarútvegsráðstefnan Á undanförnum vikum hefur verið unnið að því að stofna félagið Sjávarútvegsráðstefnuna ehf. Hlutverk félagsins er að halda árlega sjávarútvegsráðstefnu og er tilgangur hennar að: · stuðla að faglegri og fræðandi umfjöllun um sjávarútveg og · vera vettvangur fyrir samskipti allra þeirra sem koma að sjávarútvegi á Íslandi.
Nánari upplýsingar um félagið er að finna hér Drög að lögum félagsins er að finna hér Fyrsta sjávarútvegsráðstefnan verður haldin 6.–7. september 2010 á Grand Hótel í Reykjavík. Allir er láta sig málefni sjávarútvegsins varða geta tekið þátt í stofnun félagsins og mætt á stofnfund. Þeir sem hafa áhuga að vera hluthafar en geta ekki mætt vinsamlega sendið tölvupóst til Guðbrands Sigurðssonar (gs@nyland.is) eða Valdimars Inga Gunnarssonar (valdimar@sjavarutvegur.is).
Fundartími: 19. febrúar klukkan 15:30
Fundarstaður: Verbúðin – Víkin, Sjóminjasafnið í Reykjavík, Grandagarði 8, 101 Reykjavík.
Fundarefni stofnfundar: 1. Tilgangur félagsins 2. Breytingar og þróun í greininni og nauðsyn þess að hafa svona félag. 3. Hefðbundin stofnfundarstörf
|
|
|