28.04 2002

Ertu að leita að upplýsingum um eldistækni?  

Á Sjavarutvegur.is er að finna fjölda upplýsinga um tæknimál innan fiskeldis.  Þar má m.a. finna upplýsingar um sjókvíar, endurnýtingarkerfi, hreinsibúnað, flutningsbúnað og margt fleira.  Undir liðnum sjókvíar-lesefni er hægt að sækja bækur sem fjalla um sjókvíaeldi. 

Auðlindadeild

Markmið auðlindadeildar við Háskólann á Akureyri er að búa nemendur undir störf og framhaldsnám í alþjóðlegu og krefjandi umhverfi. Námið er víðtækt og veitir haldgóða undirstöðumenntun í náttúruvísindum og greinum sem tengjast nýtingu auðlinda, stjórnun, markaðsstarfi og viðskiptagreinum. Það gerir nemendum kleift að kynnast áhugaverðum fræðasviðum og opnar marga möguleika að námi loknu, t.a.m. framhaldsnámi í auðlinda- og umhverfisfræðum, fjármálum, líffræði og fleiri greinum.

Nám við auðlindadeild tekur þrjú ár og lýkur með B.Sc. gráðu. Frá og með haustmisseri 2002 er gert ráð fyrir að námið skiptist í fjórar brautir, fiskeldisbraut, líftæknibraut, sjávarútvegsbraut og umhverfisbraut