Þorskeldisdagurinn á Akureyri 24. janúar 2003

- kynning á stefnumótun í þorskeldi á Íslandi -

Föstudaginn 24. janúar næstkomandi verður efnt til ráðstefnu á Akureyri þar sem gerð verður grein fyrir stefnumótunarvinnu vegna framtíðar þorskeldis á Íslandi. Fyrir réttu ári var haldinn umræðufundur á Akureyri um þorskeldi og sýndi aðsókn hversu mikill áhugi er á greininni hér á landi. Einnig var efnt til samstarfsverkefnis sjávarútvegsráðuneytisins, sjávarútvegsdeildar Háskólans á Akureyri, Hafrannsóknastofnunarinnar og sjávarútvegs-fyrirtækja í þeim tilgangi að leggja mat á samkeppnishæfni þorskeldis á Íslandi og benda á leiðir sem eru vænlegar til árangurs.

Starfsmaður verkefnisins, Þorskeldi á Íslandi; stefnumótun og upplýsingabanki, er Valdimar Ingi Gunnarsson, sjávarútvegsfræðingur, og á ráðstefnunni á Akureyri munu hann og Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Brims og formaður verkefnisstjórnarinnar, kynna stöðu verkefnisins og þá framtíð sem þorskeldi er talið eiga hér á landi.

Sem kunnugt er hefur orðið mikil vakning í þorskeldi á undanförnum mánuðum hér á landi og nokkur af stærri sjávarútvegsfyrirtækjum landsins hrint af stað athyglisverðum tilraunaverkefnum á þessu sviði. Sömuleiðis eru nokkrir minni aðilar í tilraunaverkefnum um þessar mundir þannig að segja má að vel á annan tug fyrirtækja komi að þorskeldistilraunum með einum eða öðrum hætti nú um stundir.

Árni Mathiesen, sjávarútvegsráðherra, mun flytja ávarp við upphaf ráðstefnunnar á Akureyri. Eins og áður segir verða framsögumenn þeir Valdimar Ingi Gunnarsson og Guðbrandur Sigurðsson en að auki verður Norðmaðurinn Jørgen Borthen sérstakur gestur ráðstefnunnar. Borthen er framkvæmdastjóri átaksverkefnis í norsku þorskeldi og mun hann gera grein fyrir stöðu greinarinnar í Noregi og þeim árangri sem þegar hefur náðst þar í landi.

Ráðstefnan er opin öllu áhugafólki um þorskeldi. Hún verður haldin í matsal Útgerðarfélags Akureyringa hf. og hefst kl. 13. Að loknum framsögum verða almennar umræður og fyrirspurnir en ráðgerð ráðstefnulok eru kl. 16.20.

Í verkefnisstjórn hafa setið Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Brims, Finnbogi Jónsson, Samherja, Kristján Jóakimsson, Hraðfrystihúsinu-Gunnvöru hf., Kristinn Hugason, sjávarútvegsráðuneytinu, Jóhann Sigurjónsson, Hafrannsóknastofnuninni og Jón Þórðarson, Háskólanum á Akureyri. Að ráðstefnunni standa þorskeldisverkefnið, auk sjávarútvegsráðuneytisins, Hafrannsóknastofnunarinnar, Háskólans á Akureyri og Útvegsmannafélags Norðurlands.

 

Þorskeldisdagurinn

kynning á stefnumótun í þorskeldi

Opin ráðstefna í matsal Útgerðarfélags Akureyringa hf.

föstudaginn, 24. janúar 2003 kl. 13

Fundastjóri: Kristján G. Jóakimsson, Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf.

13:00 Ávarp sjávarútvegsráðherra, Árna Mathiesen

13:15 Stefnumótun í rannsókna- og þróunarvinnu í þorskeldi, Valdimar Ingi Gunnarsson

13:45 Þorskeldi á krossgötum, Guðbrandur Sigurðsson

14.05 Fyrirspurnir til frummælenda

14:30 Staða þorskeldis í Noregi, Jørgen Borthen

15:00 Kaffi

15:20 Almennar umræður

16:20 Ráðstefnuslit