- Fundur í Reykjavík, 16.-17. nóvember 2009-
Fundurinn er liður í þorskeldiskvótaverkefni Hafrannsóknastofnunarinnar.
Fundurnn var haldinn hjá Hafrannsóknastofnun í Reykjavík. Um morguninn 16. nóvember voru kynnt rannsóknaverkefni og þar á eftir kynnti Landsamband fiskeldisstöðva skýrsluna „Staða fiskeldis á Íslandi, framtíðaráform og stefnumótun rannsókna- og þróunarstarfs 2010 - 2013". Eftir hádegi var kynntur tækjabúnaður og þar á eftir hófst þorskeldiskvótafundurinn. Á þorskeldiskvótafundinn mættu rúmlega 20 manns en fleiri þátttakendur voru á kynningunum. Hér fyrir neðan eru nokkur erindi frá kynningum og þorskeldiskvótafundinum:
Þ Brennihvelja á Íslandsmiðum, Fannar Þeyr Guðmundsson, Háskóli Íslands
Þ Myndun lagnaðaríss í fjörðum á Íslandi, Halldór Björnsson, Veðurstofa Íslands
Þ Flokkun, talning og meðalþyngdarprufur, Benedikt Hálfdánarson, Vaki hf.
Þ Yfirlit yfir þorskeldiskvótaverkefnið í nútíð og framtíð, Valdimar Ingi Gunnarsson, Hafrannsóknastofnunin
Þ Endurnýjun á handbók, skráningar og skil á gögnum, Valdimar Ingi Gunnarsson, Hafrannsóknastofnunin
Þ Næringarþörf og fóðurgerð fyrir áframeldisþorsk, Jón Örn Pálsson, Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða
Þ Fóðurstuðull og framkvæmd fóðrunar á áframeldisþorski, Valdimar Ingi Gunnarsson, Hafrannsóknastofnunin
Að titilsíðu © 2002 Eiríkur Aðalsteinsson, Hreiðar Þór Valtýsson, Eyjólfur Guðmundsson