Vinnufundur: Föngun á þroski til áframeldis
Vinnufundur haldinn á Skúlagötu 4 dagana 22. og 23. mars 2007. Hafrannsóknastofnun stóð fyrir fundinum og boðaði til hans þá aðila sem nú stunda föngun á þorski til áframeldis.
Samantekt fundarins.
Fundarmenn voru sammála um eftirfarandi áhersluatriði:
Frekari þróun á föngunaraðferðum á þorski í því skyni að stórauka afköst. Lagt er til að megináherslur verði með tilraunir á gildrum, þorskanót, flotvörpu og botnvörpu. Við vörpuveiðar verði gerðar tilraunir með að losa poka (búr) með lifandi fiski áður en híft er.
Stórauka þarf atferlisrannsóknir á þorski með tilliti til föngunaraðferða og aukin aðkoma rannsóknastofnana að tilraunum á þessu sviði er talin mjög nauðsynleg. Fundurinn telur þörf á að stórauka rannsóknir og þróun á föngun á fiski til áframeldis og í atferli fiska með því að stofna til nýrra stöðugilda.
Við föngun á þorski til áframeldis er mikilvægt að fá undanþágu frá gildandi lögum og reglugerðum á meðan tilrauna- og þróunarvinna stendur yfir. Mikilvægt er að frelsi leyfishafa til að ákveða hvernig og hvar þeir framkvæma tilraunir sé sem víðtækast. Mikilvægt er að leyfishafar fái nokkurs konar opið rannsóknaleyfi í náinni samvinnu og samstarfi við rannsóknastofnanir.
Leggja þarf mat á áhrif stórfelldra föngunar á þorski á afrakstur þorskstofnsins. Hvaða áhrif það hefur að fanga lifandi þorsk í staðinn fyrir að veiða hann á hefðbundinn hátt. Í þessu samhengi má nefna að með því að halda fiskinum lifandi um tíma eftir föngun má bæta gæði umtalsvert. Með því að fanga smáan þorsk má auka afraksturinn þar sem m.a. afföll eru mun minni í eldi en gerist í náttúrunni.
Þátttakendur:
1. Einar Hreinsson, Hafrannsóknastofnunin
2. Elís Grétarsson, Þorskeldi ehf.
3. Erlendur M. Jóhannsson, Sæsilfur hf.
4. Guðmundur Wium Stefánsson, Vopnfiskur ehf.
5. Gunnar Þórðarson, Fiskistofu
6. Jón Örn Pálsson, Matís ohf.
7. Ketill Elíasson, Glaður ehf.
8. Ólafur Haraldsson, Einherji ehf.
9. Runólfur Guðmundsson, Guðmundur Runólfsson hf.
10. Sigurður Kristjánsson, Brim – fiskeldi ehf.
11. Sigurvin Hreiðarsson, Þóroddur ehf.
12. Símon Pauli Sivertsen, Sæsilfur hf.
13. Sævar Ásgeirsson, Brim-fiskeldi ehf.
14. Valdimar Ingi Gunnarsson, Hafrannsóknastofnunin
15. Þórir Magnússon, Þóroddur ehf.
Að titilsíðu © 2002 Eiríkur Aðalsteinsson, Hreiðar Þór Valtýsson, Eyjólfur Guðmundsson