- Fundur á Patreksfirði 3. október 2013-
Fundurinn er liður í þorskeldiskvótaverkefni Hafrannsóknastofnunarinnar.
Fundurinn var haldinn á Skor þekkingarsetur á Patreksfirði. Á fundinum var farið yfir stöðu og framtíðaráform þorskeldisfyrirtækja. Jafnframt var farið yfir talningu á þorski, meðalþyngdarprufur og affallaskráningar. Fundurinn var frá 11.30-14.00 og mættu aðallega verkefnisstjórar þorskeldisfyrirtækja ásamt fulltrúum frá Hafrannsóknastofnun. Seinnihluta dags þann 3. október og einnig 4. október sóttu þorskeldismenn ráðstefnuna Fiskeldi í köldum strandsjó Íslands í Félagsheimili Patreksfjarðar.