Þorskeldiskvótaverkefnið
Verkefnisstjóri: Valdimar Ingi Gunnarsson (valdimar@sjavarutvegur.is)
Upphafsár: 2002
Áætlað lokaár: 2007
Samstarfsaðilar: Hafrannsóknastofnunin og fyrirtæki sem fá úthlutað aflaheimildum til þorskeldis
Lýsing á verkefninu:
Þann 15. maí 2002 voru samþykktar breytingar á lögum nr. 38/1990 um stjórnun fiskveiða þar sem kemur fram að sjávarútvegsráðherra hefur til sérstakrar ráðstöfunar aflaheimildir sem nema 500 lestum af óslægðum þorski á fiskveiðiárunum 2001/2002 til og með 2005/2006. Þessum aflaheimildum skal ráðstafað til tilrauna með áframeldi á þorski í samráði við Hafrannsóknastofnunina sem fylgist með tilraununum og birtir niðurstöður um gang þeirra. Þessarí heimild sjávarútvegsráðherra hefur nú verið framlengd til og með fiskveiðiárinu 2014/2015. Markmiðið með vinnu Hafrannsóknastofnunar er að:
· Samræma söfnun og úrvinnslu gagna aðila sem fengu úthlutað þorskeldiskvóta
· Gefa árlega út skýrslu til að tryggja að sú þekking sem hefur aflast varðveitist
· Stuðla að þekkingarmiðlun á milli þorskeldisfyrirtækja
· Fá fram tillögur um mikilvæg rannsókna- og þróunarverkefni
Gefin hefur verið út ,,Handbók um skýslugerð aðila sem fá úthlutað aflaheimildum til áframeldis á þorski". Í þessari handbók eru teknar saman leiðbeiningar um hvernig standa eigi að mælingum, skráningum, úrvinnslu og birtingu á niðurstöðum vegna almennra skráninga. Í lok hvers árs er haldinn fundur með verkefnistjórum þeirra fyrirtækja sem fengu úthlutun. Þar er farið yfir reynslu ársins og skýrslugerð til Hafrannsóknastofnunarinnar. Farið verður yfir áhersluverkefni fyrir næsta kvótaár og komið með tillögur um mikilvæg rannsókna- og þróunarverkefni.
Sérfræðingar á Hafrannsóknastofnuninni vinna síðan með verkefnisstjórum einstakra þorskeldisfyrirtækja við að draga saman niðurstöður í eina samantektarskýrslu þar sem er að finna frekari úrvinnslu, samanburð á milli fyrirtækja og ítarlegri túlkun gagna. Í samantektinni verður leitað lausna á þeim vandamálum sem koma upp á grundvelli þeirrar þekkingar sem áður hefur verið aflað í rannsóknum á þorski eða öðrum tegundum. Jafnframt verði skilgreind ný rannsókna- og þróunarverkefni sem mælt er með að unnið verði að á næstu árum.
Birting niðurstaðna:
-
Valdimar Ingi Gunnarsson, Björn Björnsson, Elís Hlynur Grétarsson, Hallgrímur Kjartansson, Jón Örn Pálsson, Ketill Elíasson, Ólafur Helgi Haraldsson, Sævar Þór Ásgeirsson, Sindri Sigurðsson og Þórarinn Ólafsson 2009. Þorskeldiskvóti: Yfirlit yfir föngun og áframeldi þorsks á árinu 2007. Hafrannsóknastofnunin, Hafrannsóknir nr. 144. 40 bls.
-
Valdimar Ingi Gunnarsson, Björn Björnsson, Elís Hlynur Grétarsson, Guðmundur W. Stefánsson, Hallgrímur Kjartansson, Hjalti Karlsson, Hlynur Pétursson, Jón Örn Pálsson, Ketill Elíasson, Ólafur Helgi Haraldsson, Runólfur Guðmundsson, Sævar Þór Ásgeirsson, Sindri Sigurðsson og Þórarinn Ólafsson 2008. Þorskeldiskvóti: Yfirlit yfir föngun og áframeldi þorsks á árinu 2006. Hafrannsóknastofnunin, Fjölrit 137.
-
Valdimar Ingi Gunnarsson, Björn Björnsson, Elís Hlynur Grétarsson, Hallgrímur Kjartansson, Hjalti Karlsson, Hlynur Pétursson, Jón Örn Pálsson, Ketill Elíasson, Runólfur Guðmundsson, Sævar Þór Ásgeirsson, Sindri Sigurðsson & Þórarinn Ólafsson 2007. Þorskeldiskvóti: Yfirlit yfir föngun og áframeldi þorsks á árinu 2005. Hafrannsóknastofnunin. Fjölrit nr. 132.
-
Valdimar Ingi Gunnarsson, Björn Björnsson, Davíð Kjartansson, Elís Hlynur Grétarsson, Guðmundur W. Stefánsson, Hjalti Karlsson, Hlynur Pétursson, Jón Örn Pálsson, Ketill Elíasson, Runólfur Guðmundsson, Óttar Már Ingvason, Sindri Sigurðsson, Sverrir Haraldsson, Þórarinn Ólafsson 2006. Þorskeldiskvóti: Yfirlit yfir föngun og áframeldi þorsks á árinu 2004. Hafrannsóknastofnunin. Fjölrit nr.124, 72 bls.
-
Valdimar Ingi Gunnarsson, Björn Björnsson, Elís Hlynur Grétarsson, Gísli Gíslason, Halldór Þorsteinsson, Hjalti Karlsson, Hlynur Pétursson, Jón Örn Pálsson, Karl Már Einarsson, Ketill Elíasson, Runólfur Viðar Guðmundsson, Óttar Már Ingvason, Sindri Sigurðsson, Skjöldur Pálmason, Sverrir Haraldsson, Þórarinn Ólafsson og Þórbergur Torfason 2005. Þorskeldiskvóti: Yfirlit yfir föngun og áframeldi þorsks á árinu 2003. Hafrannsóknastofnunin. Fjölrit 113, 75 s.
-
Valdimar Ingi Gunnarsson, Björn Björnsson, Erlendur Steinar Friðriksson, Jón Örn Pálsson, Karl Már Einarsson, Ketill Elíasson, Kristinn Hugason, Óttar Már Ingvason, Sindri Sigurðsson og Þórarinn Ólafsson, 2003. Þorskeldiskvóti: Yfirlit yfir föngun og áframeldi þorsks á árinu 2002. Hafrannsóknastofnunin, Fjölrit 100, 26 bls.
Fundir á vegum verkefnisins: