Þorskeldi á Íslandi - Stefnumótun
17.-18. október í Reykholti
Til að skilgreina mikilvæg rannsóknar- og þróunarverkefni var haldinn stefnumótunarfundur í Reykholti í Borgarfirði 17.-18. október 2002. Á þennan fund mættu rúmlega 70 manns, sérfræðingar, athafnamenn og fulltrúar úr stjórnsýslu, samtökum, háskólum, rannsóknastofnunum og lánastofnunum. Á fundinum voru gerð drög að stefnumótun í rannsóknar- og þróunarvinnu í þorskeldi sem síðan voru unnin áfram, aðallega með fyrirlesurum, öðrum þátttakendum var síðan gefinn kostur á að gera athugasemdir eða bæta við atriðum sem þeim fannst vanta. Hér fyrir neðan er að finna niðurstöður þessarar vinnu, fyrirlestra sem haldnir voru á stefnumótunarfundinum og þátttakendur.
Þeir sem vilja koma athugasemdum eða ábendingum á framfæri geta sent tölvupóst til Valdimars Inga Gunnarssonar
Að titilsíðu © 2002 Eiríkur Aðalsteinsson, Hreiðar Þór Valtýsson, Eyjólfur Guðmundsson